Aðeins smáatriði og upplýsingaþörf ólokið

Jæja, við erum komin að ströndinni. Ég er búinn að kominn með nærri endanlega útgáfu af ritgerðinni og er að fara að yfirfara verkefnið í upplýsingaleiðum 2 sem við vorum sein með. Á morgun fer ég að yfirfara tilvitnanir í ritgerðinni upp á Bókhlöðu og skila henni væntanlega áður en ég fer í vinnuna.

Síðan er bara eitt verkefni eftir. Er einhver hérna í upplýsingaþörf? Vantar einhvern heimildir úr gagnabönkum á netinu en kann ekki að nálgast slíkt? Kannski get ég hjálpað.