Á morgun fer málningarvinnan af stað þannig að mig vantar aðstoð. Sjálfur verð ég eiginlega frá morgni til kvölds í íbúðinni. Þeir sem nenna að mála eða hafa jafnvel gaman að því mega hringja í mig í dag, morgun eða sunnudag til að vita hvernig gengur. Þó fólk líti bara við í einn eða tvo klukkutíma þá er gagn að því.
Í augnablikinu lítur út fyrir að íbúðin verði að mestu tilbúin fyrir málningu á morgun. Í kvöld mun ég klára að pússa sparslið og mála yfir það. Það verður kannski eitthvað sem þarf að sparsla aftur í en vonandi lítið (ég er að nota sparsl sem þarna á sólarhring). Öll íbúðin ætti að vera málningarhæf á sunnudaginn og því ætti þetta að klárast þá.