Mælt með Friðbirni

Það er óhætt að mæla með Friðbirni Orra að vanda. Hann heldur áfram þar sem frá var horfið en sleppir því hlekkja á þá sem hann er gagnrýna. Honum finnst væntanlega auðveldara að rökræða við sjálfan sig en aðra. Ég hins vegar held að Friðbjörn Orri geti alveg einn verið gagnrýni á sjálfan sig þannig að mínar athugasemdir eru í raun óþarfar, lesið hann bara. Hugsanlega má kalla það skítkast út í frjálshyggjuna að benda á Friðbjörn Orra sem dæmi um mann sem aðhyllist þá stefnu en mér er eiginlega alveg sama. Sjáið krakkar, svona eru frjálshyggjumenn.

(Af greiðasemi við Friðbjörn Orra þá sleppi ég að nota flókin orð hérna, ég minntist víst á svo erfiðan isma síðast að hann missti sig)