Ég fór þá í fyrsta sinn á fyrsta des hátíð Stúdentaráðs Háskóla Íslands. Um leið og ritstjórinn, sem var einnig fundarstjóri, hóf mál sitt þá var alveg ljóst að þetta yrði engin halelújasamkoma. Ég mæli bara með því að þið hlustið á hann, og svo sem aðra fundarmenn líka, á Útvarpsvefnum. Ég var glaður með fundinn en ekki mætinguna.
Þessi samkoma var áður fyrr dáltið meira mál en hið augljósa er að hún er á mjög slæmum tíma. Fólk er að byrja í prófum og gefur sér engan tíma í svona. Það er engin tilviljun að þegar samkoman var hve öflugust þá voru prófið ekki í desember.
Jæja, eftir þetta fórum við í kirkjugarðinn til Jóns Sigurðssonar og síðan var það rútan til Bessastaða, Eygló kom með. Reyndar var ég sjálfur hálfgerð boðflenna, ekki í Stúdentaráði sjálfur og aldrei tekið sæti þar sem varamaður. Hins vegar var það þannig Arndís og Annas komust ekki þannig að ég tróð mér með. Á Bessastöðum ruddist ég á undan öllum inn til að taka í hönd forsetans. Síðan skoðuðum við staðinn, hef ekki gert það áður.
Eftir heimsóknina litum við á Stúdentakjallarann með fleirum. Ég fékk mér pizzu og fór síðan í vinnuna. The End.
