Framboðsmál Háskólalistans

Þessa daganna er verið að setja saman framboðslista Háskólalistans fyrir kosningarnar sem fara fram í febrúar. Við þurfum fólk og því erum við að auglýsa eftir fólki á heimasíðunni. Ég veit hins vegar að margir lesendur mínir hafa áhuga á þessum málum og því er um að gera að plögga þetta hérna líka.

Hefur þú áhuga á hagsmunabaráttu stúdenta? Háskólalistinn leitar að áhugasömu fólki á framboðslista til Stúdentaráðs og Háskólaráðs. Listarnir eru ekki enn fullfrágengnir og því er enn tækifæri fyrir þig að komast að.

Þeir sem hafa áhuga á að ræða málin eða styðja okkur á einhvern hátt í baráttunni eru beðnir að hafa samband við okkur í tölvupósti hlistinn@hi.is eða við Arndísi í síma 698 9250.

Það má reyndar einnig hafa samband við mig ef ykkur fellur það betur.