Laufabrauð var gert. Fjölda flótti var hjá skólafólki, greinilegt að það er of seint að hafa þetta inn í desember. En þetta gekk vel annars. Ég er aumur í öxlum, handleggjum, höndum og fingrum. Ekki í baki sem er væntanlega því að þakka að hér höfum við eldhúsbekk til að fletja út á. Stefna mín í ár er að borða ekkert laufabrauð þangað til á Þorláksmessu. Ég náði áðan að éta yfir mig af afgöngum sem verður vonandi heftandi fyrir laufabrauðsát næstu vikur.
Það er ljóst að mín laufabrauð eru langbest. Ekki mér að þakka svosem. Uppskriftin er merkt Önnu Guðjóns í Gulu matreiðslubókinni hennar mömmu.
Nótur fyrir næsta ár: Tveir skammtar gera svona 70 kökur.
Fínt að hafa 4 dl á mjólk og 2 dl af vatni í skammti.
Best að gera fletja bara út eina köku í einu.
Ég kommenta síðan hjá sjálfum mér ef mér dettur fleira í hug.
