Bömmer dagsins er náttúrulega sá að ég kemst ekki á tónleikana með Bigga og félögum í kvöld á Gauknum þar sem þeir taka lög Rolling Stones. Þetta er í tilefni þess að út var að koma bók sem Biggi þýddi um hljómsveitina. Þetta verður án efa frábær skemmtun og mér skilst að bókin sé mjög góð líka.
