Árið er 1978 og írskur maður er að kaupa vopn í Boston. Svo kemur babb í bátinn (skothríð sbr. titilinn).
Ég hef það á tilfinningunni að undir réttum kringumstæðum hefði mér þótt Free Fire betri. Góðir leikarar eins og Cillian Murphy (sem stundaði nám við University College Cork hérumbil jafn lengi og ég) og Brie Larson (sem við þekkjum öll úr Community) fá full lítið að gera.
Sögupersónurnar eru allar ömurlegar manneskjur. Það frekar kostur en galli. Enginn fær á sig hetjuljóma enda á þetta fólk það ekki skilið. Sam Riley er sérstaklega góður sem óþolandi týpa þó ég hafi aldrei fallið almennilega fyrir Boston-hreimnum hans.