Kid Who Would Be King (2019)👍

Tólf ára strákur í London er augljóslega Artúr konungur nútímans. Jákvæð fjölskyldumynd.

Joe Cornish hefur unnið mikið með Edgar Wright, fyrst sem handritshöfundur og leikari. Það var hins vegar Attack the Block (sem gat líka af sér feril John Boyega) sem kom honum á kortið. Ég missti af henni á sínum tíma, eins og fleiri, en sá síðan í fyrra. Sú fjallar um fátæka krakka í London sem fást við geimverur. Hún er stórkostleg.

Í The Kid Who Would Be King miðar Cornish á aðeins yngri krakka. Flestir dómar sem ég hef lesið um hana segja nokkurn veginn það sama, ekki jafn góð og Attack the Block. Sem er satt. Sérstaklega af því hún dalar aðeins um miðbikið. Hefði mátt stytta. Söguþráðurinn og framvindan er kjánaleg.

Ég hló samt mikið og oft. Strákarnir líka. Stjarna myndarinnar er Angus Imrie sem er þó ekki í jafn stóru hlutverki og helstu söguhetjurnar. Bara fyndinn í hlutverki sem hefði auðveldlega klúðrast. Imrie var líka í Star Trek: Prodigy (sem ég hef ekki enn séð), Mickey 17 og Emma (sem er alveg á stóra listanum mínum).

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *