Barbarian (2022)🫴

Kona lendir í veseni með Airbnb. Það er ágætis hugmynd að hryllingsmynd.

Georgina Campbell er í aðalhlutverki, ég hef ekki séð hana áður en finnst líklegt að ég muni sjá hana aftur. Kunnuglegu andlitin eru Justin Long og Bill Skarsgård.

Það er ýmislegt gott við þessa mynd en síðan er margt klisjukennt. Þegar ég get ítrekað talið í huganum 1, 2, 3 … og síðan kemur eitthvað „óvænt“ þá er það ekki óvænt.

Verst er augnablikið með slæmu ákvörðuninni sem er óhóflega ótrúverðug.

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *