Psycho (1960)👍👍🖖

Kona er föst í gildru sem hún skapaði sjálf en mögulega verður önnur hættulegri gildra á vegi hennar. Það hljóta að verða einhverjir höskuldar hérna. Varúð ef þið hafið ekki séð.

Mögulega er Psycho frægasta mynd Hitchcock en The Birds gæti slegið henni við. Hún er samt ekki endilega talin besta mynd hans.

Áhrif hennar eru yfirþyrmandi og þau þyrma eiginlega yfir myndina sjálfa. Í dag hafa líklega flestir séð margar vísanir í myndina áður en þeir sjá hana sjálfa. Ég vissi alveg hvað gerðist áður en ég sá hana fyrst. Ég held að ég hafi jafnvel séð hluta af Psycho 2 áður en ég sá þá upprunalegu fyrst.

Verstu áhrif myndarinnar eru auðvitað að hún markar eina fyrstu vörðuna í þróun kvikmyndaklisjunnar um trans konur sem morðingja. Psycho er vissulega undir áhrifum af (meinta) raðmorðingjanum Ed Gein eins og svo margar aðrar slíkar myndir en ólíkt mörgum þeirra byggir hún ekki misskilningi á sögu hans. Reyndar er þeirri túlkun að Norman Bates sé trans bókstaflega afneitað í myndinni. Hann á bara í óeðlilegu sambandi við móður sína, líkt og Ed Gein.

Fyndnustu áhrif Psycho er auðvitað að braut múr í bandarískum kvikmyndum með því að sýna þegar sturtað er niður úr klósetti. Hneyksli.

Janet Leigh (mamma Jamie Lee Curtis¹) er góð með Macguffin-part myndarinnar. Anthony Perkins sem Norman Bates á auðvitað myndina, sem lokaði hann inni í ákveðnum hlutverkum. Ævi hans er bæði áhugaverð og sorgleg. Ástarsambönd hans og „leiðréttingarmeðferðin“ sem átti að gera hann gagnkynhneigðan (höskuldur, það virkaði ekki).

Tónlist Bernard Herrmann er auðvitað frábær og þetta er ein af mörgum kvikmyndum sem hefur eftirminnilega upphafstitla eftir Saul Bass.

Maltin gefur ★★★★ sem er rétt.

¹ Það ruglar mig alltaf að mamma heiti Leigh og dóttirin Lee, borið eins fram. Ég hugsa endalaust um Jennifer Jason Leigh sem átti minna fræga leikaraforeldra (pabbi hennar helst þekktur við fyrir það hvernig hann lést).

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *