Eileen (2023)🫴

Líf ungrar einmana konu umturnast þegar hún eignast nýja samstarfskonu í unglingafangelsinu þar sem hún vinnur, sálfræðing sem hefur nýjar og ferskar hugmyndir um hvernig hún getur hjálpað skjólstæðingum sínum. Sálfræðileg hrollvekja.

Thomasin McKenzie og Anne Hathaway í mynd sem gerist árið 1964 (svipað tímabil og í Last Night In Soho, bara annað land). Ég ákvað að láta vaða eingöngu með þær upplýsingar. Enda eru þær góðar. Ég er ekki alveg viss um myndina sjálfa.

Eileen er dökk. Það eru vissulega fyndin atriði en þau falla svolítið í skuggann af öllu hinu. Þar sem myndin er byggð á bók vaknar sjálfkrafa sá grunur að það vanti eitthvað, að mikilvægum þráðum hafi verið sleppt. Ég er samt ekki að fara að lesa bókina til að vera viss.

 

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *