Eygló á afmæli

Eygló á afmæli í dag og hún er búin að fá afmælisgjöfina frá mér.  Gjöfin er semsagt stjörnukíkir.  Eygló er 23 ára í dag.  Til hamingju með það.

Við Eygló munum síðan halda sameiginlega upp á afmælin okkar þann 11. mars næstkomandi.  Þar sem ég varð 27 ára um daginn þá erum við samanlagt fimmtug og að sjálfssögðu á að halda vel upp á slíkt.