Ég er voðalega pirraður á Sigmari í Gettu Betur. MR var að reyna að svara spurningu og það var örlítið eftir af tímanum. Þegar MR var búið að svara byrjaði Ásgeir í MA-liðinu að ýta á takkann sín megin, það sást og heyrðist. Samt rann tíminn út. Það kom í ljós að þetta voru mistök hjá stigaverði en samt var Sigmar eitthvað að ybba gogg. Pirrpirr. Annars þá eru þessi innslög frá skólunum alltof löng.