Ég rakst á frekar undarlegt nöldur í DV frá því í gær:
Kristinn Snæland skrifar:
Manni blöskrar er þingkonur í Framsóknarflokknum og Vinstri grænum þykjast bera umhyggju fyrir starfsfólki á veitingahúsum og krám. Þær minnast hins vegar aldrei á kolsýringinn frá bílum sem er eitraður, heldur tala bara um reykingafólk og vilja úthýsa þeim.
Ég veit ekki í hvaða heimi þessi maður býr ef hann heldur að þingkonur Vinstri Grænna nöldri aldrei yfir mengun frá bílum. Mikið hlakka ég til að losna við reykingar af skemmtistöðum, ég nenni varla nokkurn að fara á tónleika nema í sérstökum tilfellum. Ef ég fer þá enda fötin mín og ég sjálfur með því að anga af reykingalykt en það sem verra er að ég fæ nær alltaf hræðilegan höfuðverk sem stendur oft langt fram á næsta dag. Og sem fyrrverandi starfsmaður á skemmtistað þá þakka ég umhyggjuna sem þessu starfsfólki er sýnt.