Blossi/810551 (1997) ★★★★☆👍👍

Árið er 1997 morgundagsins og piltur og stúlka fara í óskipulagðan rúnt til Vítis og eitthvað lengra þó landafræðin sé stundum óljós.

Júlíus Kemp (Veggfóður) leikstýrir. Þóra Dungal, Páll Banine og Finnur Jóhannsson leika aðalhlutverk. Við sjáum líka fjölda kunnuglegra andlita og heyrum í kunnuglegum röddum.

Þegar Blossi kom út á sínum tíma virtist vera almennt álit að hún væri ákaflega vond mynd. Gagnrýnendur reyndu að vera eins jákvæðir og þeir mögulega gátu, eins og var venjan með íslenskar myndir, en höfðu samt fátt gott að segja. Jafnvel vinir aðstandenda myndarinnar reyndu eftir bestu getu að tala í kringum að þeir hefðu ekki fílað hana. Þannig að ég fór ekki.

Árið 2026 er Blossi sýnd í Bíó Paradís. Bíógestir virtust margir vera töluvert yngri en ég. Án þess að ég hafi tekið eftir því hafði Blossi orðið költmynd.

Blossi er auðvitað mynd minnar kynslóðar. Þóra Dungal leikur 19 ára stúlku og þegar myndin kom út var ég átján ára piltur. Það er svo margt sem minnti á þennan tíma. Bara það eitt og sér að sjá Galaxy-súkkulaði færði mig aftur í tímann.

Hefur unga fólkið rétt fyrir sér um Blossa? Ég held það. Ég fór inn algjörlega væntingalaus en hreyfst með og hló ásamt krökkunum.

Blossi er bara allt öðruvísi mynd en ég hélt og mig grunar að viðbrögðin við henni hafi verið tengdar þeim væntingum sem fólk hafði. Þetta er vegaglæpagamanmynd sem gerist í ýktum raunveruleika. Þegar ég nálgast slíka mynd hef ég ekki jafn miklar áhyggjur af því að leikarar séu ekki alveg fullkomnir. Það virkar eiginlega þrátt fyrir allt.

Maltin virðist hafa misst af Blossa.

Óli gefur ★★★★☆👍👍 og veltir fyrir hvort hann hefði verið jafn hrifinn 1997.