Ung stúlka fær óhóflega innsýn í daglegt líf foreldra sinna. (Þýsk kvikmyndahátíð í Bíó Paradís)
Was Marielle weiß virðist aðallega vera flokkuð sem drama. Kannski vegna þess að hún hefur eitthvað að segja um heiðarleika og fjölskyldur. Hins vegar er hún aðallega ákaflega fyndin.
Við fórum í Bíó Paradís sem boðsgestir (fyrir að vera á póstlista) á sérstaka sýningu á Was Marielle weiß þar sem aðalleikkonan, hin fimmtán ára Laeni Geiseler, var heiðursgestur og svaraði nokkrum spurningum eftir myndina. Ég held hún hafi komið inn í miðri mynd því ég sá hana allt í einu í tvíriti, á tjaldinu og í eigin persónu þar sem hún var að setjast niður.
Laeni Geiseler er helsta ástæðan fyrir því að Was Marielle weiß virkar svona vel. Persónan talar ekki mikið en tjáir sig með andliti og sérstaklega augunum.
Óli gefur ★★★★⯪👍👍
