Bride of Frankenstein (1935) 👍👍🖖

Óviljandi skírlífur „maður“ leitar sér maka.

Einhvern veginn datt mér aldrei í hug að vera spenntur fyrir Bride of Frankenstein, framhaldinu af Frankenstein, áður en ég heyrði henni lýst sem ígildi Gremlins 2. Auðvitað ákvað ég að drífa í áhorfi áður en við færum á The Bride.

Bride of Frankenstein byrjar á römmunartæki sem hefði á öðrum tímum verið kallað póstmódernískt. Síðan dembir myndin okkur í lokaatriði upprunalegu Frankenstein. Þar setur Una O’Connor (hún lék í öllu) tóninn sem æst eldri kona. Þetta er langt frá því að vera hrein hryllingsmynd, það mætti mun frekar kalla hana hryllingsgamanmynd.

Flestir úr upprunalegu Frankenstein snúa aftur. James Whale leikstýrir, Carl Laemmle Jr. framleiðir (faðir Universal skrýmslanna) og John L. Balderston skrifar handritið (sem Whale endurskrifaði). Karloff er skrýmslið og Colin Clive er dr. Frankenstein. Valerie Hobson tekur yfir hlutverk brúðar dr. Frankenstein en það er leyndarmál hver leikur brúði Frankensteins yngri. Elsa Lanchester leikur höfundinn Mary Wollstonecraft Shelley (pómó). Við fáum líka Ernest Thesiger í hlutverki nýs brjálaðs vísindamanns sem hefur greinilega haft mikil áhrif á þessa erkitýpu (jafnvel Christopher Lee í …).

Leonard Maltin lýsti Gremlins 2: The New Batch sem ádeilu á sjálfa sig. Má segja það sama um Bride of Frankenstein? Við vitum að James Whale átti það sameiginlegt með Joe Dante að hafa verið áhugalítill um að gera framhaldsmynd. Sambýlismaður Whale sagði að leikstjórinn hefði áttað sig á að hann gæti ekki toppað upprunalegu Frankenstein þannig að þegar hann var loksins sannfærður um að taka verkið að sér ákvað hann að gera framhaldið fjörugt.¹ Sumsé, svipað og gerðist með Gremlins 2.

Að einhverju leyti virðist Bride of Frankenstein vera fórnarlamb Hays-kvikmyndaritskoðunarinnar. Það má spyrja hvort ein ástæðan fyrir því að Whale hallaði sér að gríni frekar en hrolli sé að hann hefði aldrei getað gengið lengra en í Frankenstein. Fyrri myndin var einmitt klippt niður eftir að ritskoðunin gekk í gildi og mér skilst að sumt af því sem var tekið út sé einfaldlega glatað.

Það sem þurfti að klippa út úr Bride of Frankenstein, bæði úr handritinu og myndinni sjálfri, virðast aðallega hafa verið atriði sem vísuðu á einhvern hátt í trúarbrögð. Eitt af því sem var fjarlægt hefði líklega verið stórfenglegt (tengist styttu af Jesú á krossinum).

Fólk hefur deilt, og deilir enn, um hvaða merkingu á að lesa úr Bride of Frankenstein. Má lesa hana sem ádeilu á trúarbrögð eða upphafningu á þeim? Er rétt að hinsegin þemu séu undirstaða hennar? Leikstjórinn er kannski dauður en hann hafði sjálfur ekki mikla trú á trúarbrögðum. Miðað við það sem var klippt út sýnist mér ádeila líklegri túlkun. Aftur á móti var hann samkynhneigður og þó sumar túlkanir séu ýktar þá virðist greinilega vera eitthvað raunverulega til staðar.

Það virðast hafa verið meiri peningar lagðir í Bride of Frankenstein en þá upprunalegu. Öll umgjörðin er mun flottari. Þarna eru brellur sem ég hélt að hefðu verið tæknilega ómögulegar á þessum tíma.

Nú er ég ekki einn af þeim sem telur Gremlins 2 vera betra en sú upprunalega en ég er á því að Bride of Frankenstein sú mun betri en sú fyrsta. Gæti ég verið að misskilja Frankenstein eins og svo margir sem telja Gremlins 2 vera mikið betri virðast varla fatta Gremlins? Það væri allavega áhugavert að horfa á Frankenstein í ljósi framhaldsins.

Maltin gefur ★★★★.

Óli gefur ★★★★★👍👍🖖.

¹ Hoot er illþýðanlegt orð.

² Kvikmyndin Gods and Monsters fjallar á skáldlegan hátt um James Whale og samkynhneigð hans. Mér fannst hún frábær á sínum tíma en kannski yrði ég gagnrýnni núna því ég að ég veit hvað er ekki satt.

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *