Hvað gerist ef góðir menn loka augunum?
Ef þú sest niður og horfir á írska mynd sem gerist á tuttugustu öldinni er ekki alltaf auðvelt að giska nákvæmlega hvaða áratug um sé að ræða. Í Small Things Like These kom stærsta vísbendingin í formi dægurlags. Síðan leikur myndin sér líka að þessu tímaleysi.
Cillian Murphy og Emily Watson leika aðalhlutverkin í Small Things Like These sem byggir á samnefndri bók. Aðalpersónan er fjölskyldufaðir í litlum bæ í suðausturhluta Írlands. Áskorun hans er að sætta fortíð sína og samtíð.
Það má alveg segja að Small Things Like These kallist á við hryllingsmyndina Fréwaka. Eða, öllu heldur, myndirnar sína báðar hvað það er sem írskt kvikmyndagerðarfólk telur mikilvægast að fást við í dag.
Small Things Like These gerir hlutina auðvitað allt öðruvísi. Hún er eins og aðalpersónan. Hæglát og lætur ekki mikið yfir sér en undir niðri ólgar sama reiði og í Fréwaka.
Ben Affleck og Matt Damon eru meðal framleiðenda Small Things Like These.
Óli gefur ★★★★⯪👍👍.
