Fóstursystkini eiga í ástríku en frekar óheilbrigðu sambandi.
Líklega kemur það ekki að sök að ég hef hvorki lesið Wuthering Heights né séð nokkra af þeim kvikmyndum sem gerðar hafa verið eftir bókinni. Mögulega hjálpar það. Aftur á móti þekki ég lagið vel.
Wuthering Heights er í leikstjórn Emerald Fennell með Margot Robbie og Jacob Elordi í aðalhlutverkum. Aðrir leikarar eru m.a. Martin Clunes, Alison Oliver, Hong Chau og Charlotte Mellington¹. Myndinni var ekki tekið með einróma lofi. Stundum hefur fólk einfaldlega rangt fyrir sér þegar það hakkar í sig kvikmyndir. Í þessu tilfelli skil ég alveg að hún heilli ekki alla.
Ég hef nokkrum sinnum talað um hve veikur ég er fyrir góðri litahönnun í kvikmyndum. Jafnvel þegar aðrir myndu telja litanotkun óhóflega. Wuthering Heights er afskaplega stíliseruð og fallega hönnuð mynd. Mér fannst gaman að reyna að fylgjast með því stórfenglega en naut þess líka að taka eftir smáatriðunum.
Flest lögin í Wuthering Heights eru með Charli XCX og þó ég þekki lítið til tónlistar hennar fannst mér hún komast vel frá því verkefni. Það er samt nær ómögulegt verkefni að komast undan skugga Kate Bush. Ég skal halda því blákalt fram að hennar lag sé eitt besta popplag tuttugustu aldarinnar. Á sinn hátt er það líka jafn yfirdrifið og fáránlegt og þessi kvikmynd.
Out on the wily, windy moors
We’d roll and fall in green
You had a temper like my jealousy
Too hot, too greedy
Wuthering Heights er ekki mynd sem þykist ætla að vera trú bókinni. Þetta er fyndin, gröð, galin, og dramatísk túlkun á sögunni. Hún fer viljandi algjörlega yfirum. Í nokkrum tilfellum gat ég varla hætt að hlæja að bröndurum.
Fennell hefur víst sagt að Wuthering Heights eigi að endurskapa tilfinningar táningsstúlku sem les bókina í fyrsta sinn. Ég held ég skilji hvað hún meinar með þeim augljósu fyrirvörum að ég hef hvorki lesið bókina né verið táningsstelpa.
Annars hef ég sjálfur aldrei verið spenntari fyrir því að lesa bókina Wuthering Heights en eftir að hafa séð myndin Wuthering Heights eftir Emerald Fennell.
Óli gefur ★★★★⯪👍👍
¹ Charlotte Mellington er góð í hlutverki hinnar ungu Cathy en það hvernig augun hennar ná að taka yfir skjáinn gæti vel gert hana að stjörnu.
