The Life of Chuck (2024) ★★★★☆👍

Allt er að fara til fjandans en við skulum samt þakka Chuck.

Ég hef ekki lesið söguna eftir Stephen King þannig að ég get ekki komið með neinn samanburð. Margir töldu að ómögulegt að kvikmynda The Life of Chuck og ég held ég skilji hvers vegna. Það virðist þó hafa tekist.

Það er haugur af frábærum leikurum í The Life of Chuck. Tom Hiddleston er í titilhlutverkinu. Mark Hamil og Mia Sara eru áberandi í fyrsta þætti myndarinnar. Eiginkona Flanagan, Kate Siegel, leikur hippakennarann.

Ástæðan fyrir því að ég hef verið í Stephen King áhorfi undanfarið er að ég byrjaði óvart að hlusta á hlaðvarpið The Kingcast. Óvart spyrðu?

Ég ætlaði bara að hlusta á The Spiel sem fjalla um myndir Spielberg. Ég byrjaði á þætti núll og þar kom fram að þetta væri frá þeim sömu og höfðu verið með The Kingkast í nokkur ár. Svo er það upplýst, sem flestir hlustendur vissu líklega fyrirfram ólíkt mér, að annar stjórnandinn hafði látist eftir að hafa tekið upp töluvert af þáttum fyrir nýja hlaðvarpið.

Þetta tengist myndinni, ég lofa.

Mike Flanagan leikstjóri kom nokkrum sinnum í The Kingcast og var greinilega vinur Scott Wampler og Eric Vespe stjórnenda hlaðvarpsins. Þegar kom að The Life of Chuck var þeim tveimur boðið að koma fram í myndinni.

Scott Wampler dó áður en hann sá The Life of Chuck og Mike Flanagan ákvað að tileinka honum myndina. Þannig að ef þið horfið á myndina og eruð að velta fyrir ykkur hver þessi gaur var þá hef ég sparað ykkur tíma.

The Life of Chuck virkaði á mig að langmestu leyti. Það voru nokkur atriði sem hreyfðu meira að segja við mér. Ég skil samt fólk sem telur að myndin sé full væmin.

Helsti galli The  Life of Chuck er að sögumaðurinn útskýrir allt nákvæmlega. Ég hef á tilfinningunni að Flanagan hafi verið hræddur við að áhorfendur myndu ekki skilja söguna. Það er hættulegt að hugsa of mikið um þarfir fólks sem er ekki með á nótunum.

Óli gefur ★★★★☆👍

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *