Doctor Sleep (2019) ★★★★⯪👍👍

Here’s Danny!

Maður með yfirnáttúrulega hæfileika sem upplifði harmleik í æsku reynir að takast á við lífið.

Ég las Duld þegar ég var í sjöunda bekk þegar ég var að keyra í gegnum Stephen King á fullu. Það var ekki löngu seinna sem ég horfði á The Shining. Mér fannst bókin mun betri en núna er ég ekki viss. Báðar útgáfur af sögunni eru góðar.

Stephen King er ekki sammála. Hann hefur talað mjög illa um mynd Stanley Kubrick. Reyndar virðist andúð hans á kvikmyndinni hafa aukist eftir að leikstjórinn var neikvæður í garð bókarinnar.

Árið 2013 gaf Stephen King út framhald af Duld sem heitir Doctor Sleep. Ég held að ég hafi tekið tvær syrpur í lestri á bókum hans síðan þá en ég hef ekki reynt við Svefndoktorinn. Fæstir virðast hafa fallið fyrir henni.

Leikstjórinn Mike Flanagan hugsaði með sjálfum sér að hann gæti kvikmyndað framhaldið. Sem er virðist feigðarflan. Hverjum hefur tekist að gera framhald af fjörutíu ára gamalli klassískri mynd? Ef þú ert með sömu leikara í sömu hlutverkum er mögulegt að vekja nostalgíu en það er ekki hægt í þessu tilfelli.

Á þessum tímapunkti voru allir þrír aðalleikararnir hættir í bransanum og fjórði lykilleikarinn Scatman Crothers löngu látinn. Það hefði verið hægt að yfirstíga lítilræði eins og örlög persónanna því í þessum heimi geta hinir látnu birst. Þannig að þetta voru allt nýir leikarar og engar tæknibrellur notaðar til að breyta andlitum þeirra. Sembeturfokkingfer.

Síðan er það munurinn á Duld og The Shining. Þær enda ekki eins. Örlög fólks eru ekki þau sömu. Ertu að gera framhald af Kubrick eða King? Mike Flanagan ákvað að fara erfiðustu leiðina og gera tilraun til að brúa bilið. Það er auðvitað ómögulegt að gera það fullkomlega en ég veit ekki hvort hægt sé að gera það betur.

Það er rétt að taka fram að ég horfði á leikstjóraútgáfuna af Doctor Sleep. Hún er alveg þrír klukkutímar en ég sá víða ábendingar um að það væri mikið betri.

Doctor Sleep fjallar um Dan(ny) Torrance og hvernig hann tekst á við lífið eftir allt sem á gekk í fyrstu sögunni. Hann er leikinn af Ewan McGregor sem þarf lukkulega ekki að líkjast Danny Lloyd¹ sem lék hlutverkið upprunalega. Sá Danny kíkir þó reyndar við sem áhorfandi á hafnaboltaleik.

Í Doctor Sleep þarf Dan Torrance að takast á við bæði gamla óvini og nýja, náttúrulega og yfirnáttúrulega. Hann kynnist líka öðrum sem skína.

Önnur meginhluverk leika Rebecca Ferguson (Dune), Zahn McClarnon (Dark Winds), Carl Lumbly, Emily Alyn Lind og Kyliegh Curran (The Fall of the House of Usher). Þar að auki eru tveir sem léku í Gerald’s Game, fyrri Stephen King mynd Flanagan, þeir Henry Thomas (Ell-í-ott úr E.T.) og Bruce Greenwood.

Tónlistin skiptir höfuðmáli í myndinni. Stef Wendy Carlos úr The Shining eru notuð á áhrifamikinn hátt.

Það sem kemur í veg fyrir að Doctor Sleep fái hæstu einkunn er lokauppgjörið. Ég ætla augljóslega ekki að fara út í smáatriði en þetta virkaði bara ekki fyrir mig.

Óli gefur ★★★★⯪👍👍

¹ Í þætti 240 af The Kingcast kemur hinn fullorðni Dan Lloyd í spjall um reynslu hans af tökum The Shining. Ég mæli alveg með því.

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *