Kattarfælið kattarlegt fólk eltist við „góðar“ ungar stúlkur.
Stephen King heimtaði að Mick Garris, sem gerði Critters 2, myndi leikstýra Sleepwalkers. Það er gott að hafa þetta í hug þegar þið eruð að reyna að fatta tón myndarinnar.
Brian Krause og Alice Krige leika náin mæðgin sem hafa sameiginlegan áhuga um unglingsstúlkum sem hafa ekki verið við karlmann kenndar. Mädchen Amick leikur Bjólf unga stúlku sem lítur sakleysislega út þrátt fyrir að hafa leikið í Twin Peaks.
Mark Hamill, Dan Martin og Ron Perlman leika löggur. Glenn Shadix er kennari sem grunar að eitthvað sé gruggugt og er svolítið gruggugur sjálfur.
Mick Garris fékk nokkra vini sína í gestahlutverk í Sleepwalkers þannig að þið getið haft augun opin fyrir Clive Barker, Tobe Hooper, Joe Dante og Stephen King.
Til að byrja með þótti mér Sleepwalkers algjör meðalmennska. Síðan tók hún beygju og ég áttaði mig á tóninum. Maísstöngullinn gerði útslagið.
Sumir hafa lýst Sleepwalkers sem svo slæmri að hún sé skemmtileg. Ég held að það sé misskilningur. Þetta er mynd sem veit hvað hún er. Hún er skemmtileg af því hún á að vera skemmtileg.
Sleepwalkers parast vel við Cat’s Eye. Þessi er auðvitað meiri hryllingur en kattarþemað límir þær saman.
Upprunalega útgáfan af Sleepwalkers var víst með meira kynlífi og ógeði. Held samt ekki bæði í einu.
Maltin gaf ★★⯪☆ en hrósaði húmornum sérstaklega.
Óli gefur ★★★★☆👍👍
