Ljóska ögrar sjálfri af slæmum ástæðum en lærir meira en hún bjóst við.
Mig rámaði í nokkur atriði Legally Blonde en hef ekki séð hana áður í heild sinni. Ekki beinlínis af viljaleysi. Það er stundum sem ég bíð með myndir sem ég hefði horft á með Eygló ef hún sér þær á undan mér.
Legally Blonde er skrifuð af Kirsten Smith og Karen McCullah. Þær skrifuðu líka 10 Things I Hate About You, Ella Enchanted, House Bunny og She’s the Man. Af þeim hef ég bara séð Skassið tamið sem mér þótti frábær.
Legally Blonde er fyrst og fremst bráðfyndin mynd. Það eitt og sér fleytir henni langt. Aðalsöguhetjan okkar er góðhjörtuð og sæt og ef þér er ekki bókstaflega illa við Reese Witherspoon þá ætti sjarmi hennar að fleyta myndinni langleiðina.
Aðrir leikarar eru Luke Wilson, Ali Larter, Jennifer Coolidge, Selma Blair, Linda Cardellini og Victor Garber. Raquel Welch kemur í hálfgerðu gestahlutverki.
Í upphafstitlum Legally Blonde öskraði nafnið Oz Perkins á mig. Ég vissi varla að hann hefði verið leikari áður en hann fór að leikstýra kvikmyndum. Hann byrjaði víst feril sinn kornungur með því að leika unga útgáfu af Norman Bates í Psycho 2. Þar sem ég þekki hann ekki í sjón reyndi ég að giska hver hann væri. Einu vísbendingarnar mínar voru að hann væri mögulega líkur pabba sínum og að hann yrði líklega fenginn í hlutverk sem teldist viðeigandi að fá son Tony Perkins í. Dorky David er svarið, ég giskaði rétt.
Stundum þótti mér lögfræðin í Legally Blonde vera full ódýr. Sömuleiðis eru atriði sem eiga að sýna að aðalsöguhetjan sé rosalega klár ekki sérstaklega vel skrifuð.
Legally Blonde er mynd sem snýst um að dæma fólk ekki eftir útlitinu en eitt helsta afrek ljóskunnar byggir á steríótýpum um samkynhneigða karlmenn. Áherslan ástarlíf söguhetjunnar í lok myndarinnar grefur svolítið undan feminískum boðskap hennar. Þetta var víst verra í eldri útgáfum af myndinni. Þessi endir var tekinn upp mun seinna og leikararnir upp til hópa með hárkollur.
Legally Blonde er reglulega líkt við Clueless. Aðallega vegna þess að söguhetjurnar eru svipaðar. Ég yrði ekki hissa ef „Clueless í Harvard“ hafi verið notað til að selja þessa hugmynd. Samanburðurinn er kannski ekki sérstaklega heppilegur fyrir Legally Blonde.
Maltin gefur ★★⯪☆
Óli gefur ★★★★☆👍👍
