Samþykktur

Ég sá áðan hjá brúna rýtingnum að hún hefði fengið bréf með samþykki frá HÍ þannig að ég þaut heim til að kíkja á póstinn minn.  Og þeim var ánægja að tilkynna að ég hefði verið samþykktur.

Ég var merkilega panikaður yfir þessu þó Terry væri fyrir löngu búinn að segja mér að þetta væri öruggt.

Þetta er reyndar með því skilyrði að ég klári BA-verkefnið og fá fyrstu einkunn en það ætti ekki að vera neitt mál.

Ég er þannig orðinn mastersnemi í þjóðfræði.  Gleðigleði.