Zelig

Ég tek ekki jafn stórt upp í mig og Ármann en Zelig er vissulega hátt á lista yfir mínar uppáhaldskvikmyndir.

Reyndar var dagskráin fyrir gærkvöldið mjög vafasöm á Skjáeinum.  Ég leit snöggt á Textavarpið og þar stóð að myndin byrjaði 22:40 (sem hentaði vel því Boston Legal var á undan).  Mig fór að gruna að eitthvað væri skakkt þegar Wanted byrjaði 22:30 (leiðindaþáttur sýnist mér).  Ég kíkti aftur á dagskránna og sá að samkvæmt henni þá væri þátturinn einungis tíu mínútna langur sem mér þótti grunsamlegt.  Ég kíkti á heimasíðu Skjáseins og þar voru skráðar tvær tímasetningar á Zelig, 22:40 og 23:15.  Það passaði hins vegar ekki við að CSI átti að vera á dagskrá um miðnætti.

Sjónavarpsstöðvar mættu vera duglegri að passa að dagskráin sé rétt skráð.

En myndin byrjaði 23:15 og ég horfði á hana þó ég þyrfti að vaka frameftir.  Horfði reyndar líka á CSi þannig að ég svaf full lítið í nótt.