Ég var að lesa merkilega bloggfærslu hjá honum Elíasi Halldóri um íslenska þjóðsönginn. Ég fór í kjölfarið að skoða lögin um þjóðsönginn og sá þar að brot á þeim lögum geta varðað fangelsi allt að tveimur árum! Hvað er að? Hverjum dettur í hug að það gæti undir nokkrum kringumstæðum verið réttlætanlegt að fangelsa manneskju, hvað þá í tvö ár, vegna vanvirðingar við þjóðsönginn? Þetta er sannarlega fasískt. Þessi klausa var sett inn árið 1998 sem er svoltið óhuggulegt.
Ég stóð líka í þeirri trú að þjóðsöngurinn héti Lofsöngur.