Ferð til Akureyrar… persónulegt…

Jæja, ég er á Akureyri. Í gær hringdi Hafdís í mig og sagði að ömmu væri að versna en hún hefur verið á sjúkrahúsi síðan um helgina. Ég keyrði því beint norður í morgun. Ég ákvað þó að koma við og teygja úr mér á Blönduósi, hjá henni Ingibjörgu Hönnu. Hún tók mig í hraðskoðun um safnið og ég tók mynd af henni sem er á myndablogginu.

Þegar ég kom til Akureyrar fór ég með Hafdísi og Sóleyju á sjúkrahúsið að hitta ömmu. Hún var vakandi og virtist heyra í okkur en sagði ekkert. Við fórum síðan í heimsókn til afa. Ég fór síðan einn á sjúkrahúsið og var þar í rúman klukkutíma. Sat bara og hélt í höndina á ömmu, hún var sofandi og mér þótti óþarfi að vekja hana. Erfitt að sjá hve illa henni leið.

Eftir þetta gerði ég mitt besta til að spilla æskunni en ég myndbloggaði það ekki þó ég hafi tekið mynd. Ég er þá búinn að borða Greifapizzu og fer að koma mér suður aftur. Ef ég hefði ekki tónlist í bílnum þá yrði ég geggjaður á þessum akstri. Myndi hugsa alltof mikið.