Dagurinn í dag

Í dag hefði Freddie Mercury orðið sextugur ef ekki væri fyrir þá augljósu staðreynd að hann dó fyrir fimmtán árum.  Allir spila Queenlög í tilefni dagsins.

Dagurinn var hins vegar góður.  Fór í tíma með Hjalta í morgun sem var ágætt þó stofan sé glötuð.  Fór síðan yfir leiðréttingar Bigga á BA-verkefninu.  Ég hef ákveðið að sitja tíma í Tolkien áfanganum hans Terry án þess að skrá mig í hann og fyrsti tíminn var í dag, það var endalaust gaman.

Sat síðan í rúma þrjá tíma með MA-nemum og fylgifiskum að spjalla um straumar og stefnur í þjóðfræði.  Meðal annars var rætt um blogg sem þjóðfræðilegt rannsóknarefni
Nú sit ég og bíð eftir að hitta Jóhönnu út af BA-verkefninu mínu.  Full löng törn á Háskólasvæðinu en að sama skapi umgengst maður skemmtilegt fólk út í gegn.