Fór áðan niður í Nettó að ná í pakka sem pósturinn kom með í gær þegar ég var sofandi (langur skóladagur og lítill svefn nóttina áður). Það kom í ljós að hér var komið fyrsta eintak mitt af Skírni. Reyndar var þetta vorblaðið sem ég fékk enda hafði ég beðið sérstaklega um það. Þarna gat ég þá loksins lesið greinina sem Ármann gat notað sem réttlætingu fyrir endalausu Survivorglápi. Nú hefur hann enga afsökun nema kannski vonin um að sjá mig aftur á skjánum.