Ég hef aldrei áður kynnst svona létti að vera búinn með próf. Mér líður eins og að önnin sé búin en þó eru þrjú próf eftir. Stressið í kringum Aðferðafræðiprófin nær ekki einu sinni upp í þetta. Munnlega prófið gekk semsagt bara vel fannst mér og ég er kominn heim aftur.
Ég held að ég hafi minnst á Rannsóknirnar á nær hverjum degi síðustu mánuði. Ég veit að ég hef hugsað um þær á hverjum degi síðan í ágúst. Hinir kúrsarnir eru bara eitthvað auka. Langerfiðasti kúrs sem ég hef tekið en augljóslega ótrúlega gagnlegur.
Segi eitt langt notalegt ahhh….
Heimapróf já… best að kíkja á það.