Ný myndasíða

Í stað þess að læra þá var ég að fikta í að setja upp nýtt myndaalbúm á netið.  Ég var ekki alveg sáttur við það sem ég var að nota en þetta er mjög einfalt og þægilegt í notkun.  Það er líka með meiri möguleika á að stjórna aðgangi fólks.  Ef þið viljið skoða myndirnar mínar þá skulið þið skrá ykkur á myndasíðunni og láta mig síðan vita af því svo að ég geti hleypt ykkur að.  Þegar ég var að skrá mig inn þá kom einhver villa en skráningin komst samt í gegn.

4 thoughts on “Ný myndasíða”

Lokað er á athugasemdir.