Meistarinn?

Ég ákvað að prufa að fara í prófið fyrir Meistarann núna áðan.  Það gekk ágætlega.  Geri mér ekki miklar vonir um að komast í þáttinn.  En ég var allavega fljótur að koma því frá mér sem ég vissi.  Hafði aukatíma sem ég notaði til að reyna að svara spurningunni hvers vegna viltu taka þátt í Meistaranum.  Ég skrifaði að Logi væri bara svo sexí.