Fótanudd í ryði

Kastljósið í kvöld var nokkuð gott og Ragnhildur Steinunn stóð sig ákaflega vel.  Hún hafði greinilega kynnt sér málið vel en hún var líka bara óhrædd við að spyrja spurninga eins og “hvernig?” og “af hverju?”.  Það vantar mjög oft, jafnvel yfirleitt, að fréttamenn spyrji svoleiðis spurninga.