Áðan tók ég mitt fyrsta viðtal í Eigindlegum. Gleymum því að ég átti að skila fyrsta viðtalinu uppskrifuðu fyrir tveimur vikum. Ég stefni á að skrifa þetta upp á morgun og föstudag og ætti því að geta skilað þessu fyrir helgi. Viðtalið gekk sko bara vel.
Strætóferðir dagsins voru skemmtilegar. Hitti eigindlega kennarann og síðan Steinunni Rögnvalds. Ég skemmti þeim báðum með sögum af símtali gærdagins. Alltaf gott að hafa góðar sögur að segja.