Í gær var Geir Haarde mótfallinn ríkisstjórn Samfylkingar og VG. Í dag er Guðjón Arnar ekki glaður að flokkurinn hans fái ekki neinn þingmann. Það er gott að fréttamenn eru á fullu í þessarri rannsóknarblaðamennsku. Svo fréttamenn viti af mér sem væntanlegum viðmælanda þá finnst mér leiðinlegt að VG fái minna í könnun í dag en í gær. Ég býst við að koma fram í öllum fjölmiðlum á morgun að ræða þetta.