Náði loksins að setjast niður og skrifa grein á Vantrúna. Nafnið mitt hefur staðið þarna í nokkurn tíma án þess að ég hafi skrifað neitt enda var ég netlítill í rúma viku. Nú er gott að nýta tækifærið og bæta við auglýsingu á vefinn sem er vissulega er mjög þarfur til að skapa umræðu. Á reyndar eftir að ákveða hvar ég læt hana en allavega koma uppfærslur núna á rss-yfirlitið hérna á aðalsíðu dagbókarinnar. Síðasta setning er hugsanlega ógild því ég var að láta upp mynd með tengli sem ég hef kannski til framtíðar.
Lesið Vantrúna og hún mun frelsa ykkur frá villu trúarinnar.
