Of mörg té

Róttækar og róttækur. Tvö té í báðum tilfellum.  Jón Sigurðsson fer verulega í taugarnar á mér þegar hann segir þessi orð.  Hann ber nefnilega fram þrjú té.  Rótt-tækur. Rótt-tækar. Þetta er mjög týpískt fyrir fólk sem er að reyna að gera sér upp norðlenskan hreim.  Fréttamenn á RÚV gera þetta líka stundum, þá tvöfalda þeir líka káin.  Tvöfaldar Jón Sig káin sín?