Sófablogg

Til að biðjast afsökunar á ofgnótt stjórnamálafærslna er rétt að skrifa um eitthvað annað.

Í síðustu viku fórum við Eygló í Rúmfatalagerinn að kaupa hitt og þetta.  Við enduðum á því að falla fyrir sófa einum.  Á laugardaginn fórum við síðan og keyptum hann.  Við fengum hann núna áðan og eftir miklar herðingar þá er hann tilbúinn.  Heildarmynd stofunnar er mikið breytt og við höfum jafn mörg viðbótarsæti hér inni og VG á þingi.  Fórum einmitt úr fimm í níu (þá tel ég símastólinn ekki með þar sem hann er utan þessa aðalrýmis).  Hér ríkir mikil gleði með þetta.  Reyndar fékk ég áðan tilboð um að kaupa sófa af Framsókn sem hefði kannski verið enn meira í takt við það sem gerðist á þingi.

Ég biðst afsökunar á því að hafa ekki getað sleppt stjórnmálatilvísunum í þessari færslu.