Voðaleg leti er í gangi hérna. Reyndar er myndin af okkur Ella svo sæt að mér finnst allt í lagi að leyfa henni að hanga efst í smá tíma.
Ég er í tímum hjá hákarlinum þessa daganna. Ágætt en ég er ekki að læra neitt nýtt. Terry fór greinilega vel í gegnum þetta.
Í næstu viku fer ég í sumar”vinnuna” mína. Ég fer semsagt að hanga í Odda að vinna að rannsókninni. Síðan tekur við tveggja vikna sumarskóli í Danmörku. Fjör.
Margt fleira að gerast. Ég verð aðallega glaður þegar ég klára þessa önn. Hún hefur ekki verið jafn erfið og sú síðasta en ekki nærri því jafn skemmtileg. Tíminn hefur farið of mikið í umsóknir og svoleiðis dóterí.