Tímalínan í That 70s Show er svoltið bjöguð og ýmislegt er verulega undarlegt. Þegar þátturinn byrjaði þá voru þau öll í high school, meiraðsegja voru þau öll nema Jackie líklega í eldri bekkjunum. Nú er fimmta serían og loksins eru þau að útskrifast, Jackie virðist vera orðin jafngömul hinum. Reyndar hefur oft verið gefið í skyn að tíminn líði hægar í þáttunum.
Hve lengi eru skiptinemar yfirleitt hjá fjölskyldum sínum, reyndar myndi ég segja að það sé nær alltaf eitt ár, Fez er kominn á fimmta árið. Miðað við Fez þá gætu verið margar útskýringar á því, soralegar, soralegar útskýringar.
Tommy Chong er síðan hættur í þættinum, líklega á leið í fangelsi, það er bömmer.
Annars þá er þetta líklega uppáhaldsþátturinn minn.