Hugmyndaþjófur?

Ég sé að í Fréttablaðinu í dag er Þráinn Bertelsson að tala um að setja Björk í Öryggisráðið. Þið, hinir dyggu lesendur mínir, hafið líklega séð að ég kom fram með þessa hugmynd í gær. Þar sem ég hef ekki hátt álit á leikstjóra kvikmyndarinnar Einkalífs þá væri freistandi að halda því fram að hann hafi stolið hugmynd minni. En ég efast. Mér þykir ólíklegt að hann hafi verið að skila þessum pistli inn eftir klukkan þrjú í gær. Maður veit samt aldrei.