Skattar og styrkir

Það er komið að skattaskýrslu. Einu tekjur mínar í fyrra voru styrkir og það flækir málið. Ég er búinn að safna kvittunum en er ekkert sérstaklega öruggur í þessu. Ég sé strax að ég hefði átt að eyða miklu meira í bækur. Það væri ekki ónýtt núna að hafa það til frádráttar. En ferðakostnaður, leiga og þess háttar hjálpar nú til. Ég eyddi nú þessum peningum í eitthvað.