Einkatöfrar

Það er er merkilegt hvernig menn geta haldið því fram að einkarekstur/væðing séu hagkvæmari og betri leiðir án þess að rökstyðja það á nokkurn hátt. Þetta virðast vera einhvers konar töfrar. Jói út í bæ getur veitt sömu þjónustu og ríkið og samt grætt á því. Ég útiloka ekki að þetta sé hægt en hvernig geta menn haldið því fram að þetta sé einhvers konar lögmál?