Afrek dagsins í dag…

Í morgun skutlaði ég Eygló út á flugvöll en hún var að fara í sauðburð fyrir austan. Ég fór síðan í Odda til að prenta út greinar fyrir ritgerðina. Þegar Bókhlaðan opnaði fór ég þangað til að ljósrita og leita að heimildum. Ég prufaði líka í fyrsta skipti að nota filmuvélarnar til að skoða gömul dagblöð. Það var barasta fjör.

Það var síðan badminton eftir hádegi Siggi leysti Eygló af. Þetta var skemmtilegt nema fyrir Sigrúnu sem meiddi sig ítrekað og fékk líka ótal skot í sig, oft frá mér reyndar. Eftir að Siggi Ö. og Sigrún voru farin tókum við Siggi hörkuleik. Það var mikið hlaupið.

Ég afrekaði ekki mikið eftir að ég kom heim og ég endaði með að leggja mig og svaf yfir alla keppendur í Eurovision, sem var ágætt.