Ég passaði mig á að missa ekki af Jay Leno í gær því þá var Quentin Tarantino fullur í þættinum. Tarantino kom þrátt fyrir allt ágætlega útúr þessi, var ekki pirrandi heldur skondinn sem er alltaf plús. Kevin Bacon var þarna með honum og ég hefði haft gaman að því hafa hann alltaf í mynd til að sjá viðbrögð hans. Einu sinni kom einhver glæsilegur svipur á Jay sem var greinilega ætlaður Bacon og það var þvílík synd að fá ekki að sjá mótsvipinn.