Ég var að horfa á Judging Amy þar sem voru fjölskylduerjur þar sem mamman var nýlega dáin. Amy spyr um mömmuna og þá kemur í ljós að mamman dó í Tvíburaturnunum. Þegar hún kemst að þessu fer hún í kast og finnst þetta svo ofsalega sorglegt. Hvers vegna var þetta ekki sorglegt þegar hún vissi ekkert hvernig mamman dó? Hvers vegna er þessi dauðdagi svona miklu sorglegri en aðrir dauðdagar? Mamman hefði getað dáið eftir áralanga baráttu við einhvern ömurlegan sjúkdóm en Amy hefði ekki farið yfirum.