Sódóma eða Kardimommubærinn

Á hverju kvöldi færum við rúmið hennar Sóleyjar litlu með henni innanborðs úr herberginu inn í stofuna. Fyrsta kvöldið sem við gerðum það vorum það við Hafdís sem héldum á rúminu og á miðri leið segir Hafdís:”Þetta er einsog þegar ræningjarnir voru með Soffíu frænku í Kardimommubænum”. Næsta kvöld erum það við Mummi sem höldum á rúminu og þá segir Mummi:”Þetta er einsog þegar þeir tóku mömmuna í Sódómu”. Mér fannst fyndið hvað hjónin gátu komið með skemmtilegar vísanir þarna.