Í kvöld hittist kvikmyndaklúbburinn í fyrsta skiptið og býst ég við að cirka helmingurinn af þeim sem hef talað við mæti, ekki hafa þó allir formlega boðað forföll þannig að það gæti allt gerst. Sé fyrir mér að almennt verði ekki meiri mæting en svona 50% enda misvinsæl þemu tekin fyrir og síðan hefur fólk almennt eitthvað að gera, það er þarmeð líklega pláss fyrir fleiri. Ég er að spá í að bjóða Særúnu formlega, það myndi svo sannarlega laga kynjahlutföllin. Annars gildir það bara að hafa samband við mig ef þið viljið vera með.
Ég vill annars taka skýrt fram að ég hef engan áhuga á að kenna kvikmyndaklúbbinn við sjálfan mig því það gæfi til kynna einræðistilburði sem ég hef ekki áhuga á. Hér er síðan heimasíða Kvikmyndaklúbbsins Hringtorgs. Ef þið voruð að spá í nafninu þá kemur það til vegna þess að ég bý rétt hjá leiðinlegasta hringtorgi landsins.
Verð að vísu að reyna að fatta hvað videoið er pæla með leiðindum sínum áður en dagskráin hefst.
Eygló ætlar annars ekki að vera með í kvöld þó Marxbræðurinn veki lukku hjá henni, hún ætlar með Heiðu til Hildar og Evu. Það átti að vera osta- og rauðvínskvöld en ostarnir hafa víst dottið út þegar planið var útfært, rauðvínið er þar af leiðandi ekki einráðandi. Eygló er semsagt að fara á Vínkvöld. Þær ætla að horfa á Idol þar sem Hildur kemur kannski fram og dettur úr keppni.
Annars þá var ég að spá í þetta með stelpuna sem söng með í Svörum Fötum, mér skyldist nú að Hildur hafi ekki mátt fara í fjölmiðla og svona fyrren á næsta ári til að skyggja ekki á sigurvegarann. Hildi fannst það nú svoltið skrýtið að þeir héldu að hún gæti skyggt á sigurvegarann þar sem hún var ekki valin til að fara áfram. En það leiðir mig að því sem var pointið í þessu. Má þessi stelpa þarna fara í fjölmiðla? Veit náttúrulega ekki hvernig þessar reglur eru nákvæmlega.
