Skutlaði áðan Eygló og Heiðu í Bónus og síðan í Vínpartíið. Næst ætlaði ég að fara í næstu götu að hitta Nils og redda fyrstu mynd kvöldsins en þá var helvítis gatan lokuð. Ég þurfti að rölta heillangt sem er ekki slæmt, það sem er slæmt er að ég þurfti að labba framhjá trukknum sem lokaði götunni. Þessi trukkur var að dæla í eða úr holræsunum. Nú er ég svo veruleikafirrtur eftir að hafa horft á ótal kvikmyndir að ég sé fyrir mér að reglulega þá sprautist holræsajuk upp þegar svona trukkar eru að vinna. Ég er semsagt ekki öruggur þegar ég geng þar framhjá.
Eftir þetta fór ég heim, setti Queenplaylista af stað og upplifði ótrúlega mikla hamingju. Ægilega er Queen frábær hljómsveit, þessi tilfinning sem ég fæ þegar ég hef Queen í gangi er engu lík. „It´s bliss“.
Meðal laganna sem ég hlustaði á var Drowse sem er afskaplega vanmetið lag, í því er stórkostlegur textakafli:
Never wanted to be the boy next door
Always thought I’d be something more
But it ain’t easy for a small town boy
It ain’t easy at all
Thinkin’ it right and doin’ it wrong
It’s easier from an arm chair
Waves of alternatives wash over my sleepiness
Have my eggs poached for breakfast I guess
I think I’ll be Clint Eastwood
Jimi Hendrix he was good
Let’s try William the Conqueror
Now who else do I like?
Fyrrihlutinn er bara almennt frábær en leiðir síðan út í kafla sem eitthvað hugarflug sem ég hef ákaflega gaman af. Þarf samt að heyra lagið til að njóta þess. Roger Taylor lag, það gæti vel verið að hann sé lang besti textasmiður hljómsveitarinnar.
Núna er Life is Real í spilaranum, undirtitill þess lags er „Song for Lennon“, það kom út 1982.
Music will be my mistress
Loving like a whore
Fallegt textabrot. Textinn í heild minnir annars svoltið á Lennon.
Núna er hins vegar April Lady með Smile í gangi, Smile er semsagt hljómsveitin sem Queen var stofnuð uppúr, enginn Freddie og enginn John Deacon en frábært samt, hefði alveg getað meikað það.
Í kvöld er Idol sem ég ætla ekki að horfa á þó Hildur komi kannski, ef ég vill hlusta á Hildi syngja þá sting ég Hárinu í videoið (þó hljómgæðin séu ekki æðisleg). Ef einhver ætlar síðan að syngja Freddie þá er það slæm hugmynd, það er bara ekki fokkings hægt að koma vel útúr þeim samanburði.

Mikið er ég sammála þér…Drowse hefur alltaf verið í uppáhaldi hjá mér! Og ekki spillir að Roger syngur það sjálfur, það er alltaf viss stemmning.